I like the way you move!

My heart belong to you

23.11.2007 19:50:21 / alla

Hætt


Hætt hér!

Farið á http://allakr.blog.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 12:19:05 / alla

Mánudagur?

Mánudagur?

np: Wake me up before you go - Wham

Jæja það er víst mánudagur enn á ný! Þessi helgi hjá mér fór bara í vitleysu að mér finnst, samt ekki alveg! Ég er að hugsa um að hafa þetta punkta færslu svona til tilbreytingar!

Föstudagur:

  • Skóli til 14:35
  • Pakka niður og læra
  • Dómaranámskeið kl. 16:00-18:00
  • Fór heim með Ester
  • Sat aðeins með fjellunni og spjallaði
  • Fór til RVK kl. 20:00 að staðartíma
  • Kom við í BGN til að pikka upp fólk
  • Ég, Ester Harpa, Rasmus og Óli Maggi fórum á einum bíl, Magga og Hans fóru á öðrum!
  • Ætluðum í keilu
  • En þá var 20 ára aldurstakmark inn í keiluhöllina svo það var víst borin von.
  • Fórum að rúnta aðeins
  • Fórum svo í bíó kl. 22:30
  • Ég, Estar Harpa, Rasmus og Óli fórum á 30 days of night
  • Frekar svona ógeðsleg mynd
  • Skánaði þó undir lokin!
  • Mæli með henni fyrir þá sem vilja fara á hryllingsmyndir
  • Vorum komin heim svona um 02:15

Laugardagur:

  • Svaf til 11
  • gerði nákvæmlega ekki neitt nema vera í sims og læra aðeins
  • vinna frá 15:30 til 23:30
  • Fór heim að horfa á TV-ið með fjellunni
  • svo bara sofa

Sunnudagur:

  • Vakna kl. 10:30
  • Pakka niður
  • Fara til RVK
  • Keppa í fótbolta við HK/Víking í Fífunni
  • töpuðum 6-2 minnir mig!
  • fór svo í Toys'R'us og keyptum jólagjafir!
  • fórum svo í húsgagnaverslunina við hliðina á.
  • Keyrði niður laugarveginn sem var mjög gaman:D
  • Út að borða á Pizza Hut (feeeita fjölskylda;) )
  • Svo bara upp á skaga að læra og sofa

Vá ég veit ekki hvort ég ætti að halda áfram að blogga þar sem þetta eru með eindæmum leiðinleg blogg!

Ætti að fara að hugsa minn gang held ég!

Aglavega það!

Aðalheiður


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 11:47:47 / alla

GLATAÐ blogg!

Jæja þá er kominn miðvikudagur enn á ný!

Laddi 6-tugur í gær:D Þetta er geggjuð sýning og ég mæli með henni fyrir alla! Ekki skemmdi það fyrir að félagsskapurinn var ekki sem verstur! Ég fór sem sagt með Sæju systur og Adda bróður á sýninguna!

Ég fór sem sagt til RVK í gær með allri fjölskyldunni, við fórum að kaupa þurrkara (finally) og svo fórum við í IKEA og þar var auðvitað verslað! Svo fórum við bara að skoða sófann sem mamma ætlar að kaupa og þá var bara komið að sýningunni! Fór svo bara upp á skaga og viti menn, þegar ég kom inn á vistina þá voru Gilsenbakkers og fleiri félagar þeirra að setja saman ný sófaborð og náttborð handa okkur hinum aumingjunum!

En ég hef bara nákvæmlega ekkert að segja svo ég held ég láti þetta bara duga í bili! Vildi bara deila þessu með ykkur!

Þetta var ógeðslega leiðinlegt blogg en það verður að hafa það!


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 21:34:35 / alla

Sigur enn á ný:D

np: Nú liggur vel ég mér - KK og Maggi Eiríks

Já vildi bara koma því á framfæri að við erum búnar að vinna tvo leiki í röð! þetta eru rosalegar framfarir! Þó svo að við höfum bara verið að spila æfingarleik núna þá unnum við hann nú samt og það telur hjá sjálfstraustinu okkar!

En allavega við unnum Þrótt 4-3! Við vorum betri aðilinninn miklann hluta leiksins og við áttum alveg fullt erindi í þessar stelpur!

Ég er bara nokkuð sátt með mína frammistöðu svo núna er bara að borða hollt, æfa vel og taka á því....þá kemur formið fljótt og þar af leiðandi auðveldara að spila fótbolta:D

np: This Love - Maroon 5

kv. Alla miðvörður!

Alla

OOOJJJJJJJJJ

Má þetta?


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 22:35:06 / alla

Aglavega sglökkva ljósin - vaff íí ss té

Np: Á tjá og tundri - Sálin hans jóns míns!

Jæja þá er enn og aftur kominn miðvikudagur....næstum fimmtudagur bara!

Ég var sem sagt að koma af fótboltaæfingu og ég hélt bókstaflega að ég myndi deyja þegar við vorum að hlaupa "útihlaupið" okkar inni:S ;) Ég er sem sagt að fá einhverja helvítis hálsbólgu að ég held og ég svoleiðis hélt ég myndi kafna þarna!

Skallagrímur er bara að tapa á fullu þessa dagana....búnir að spila tvo leiki á innan við viku og tapað báðum....nú er að duga eða drepast strákar og vinna leikinn á morgun! Þó svo að ég fari ekki.....en það hlýtur að vera hægt að vinna einn leik án mín!

Allt að gerast í fótboltanum....við vorum sem sagt að svara í dag hvort við ætluðum að vera með í meistaraflokk eða ekki og auðvitað svaraði ég játandi! Eftir æfinguna kom þjálfarinn á tal við mig og Ester og Önnu Heiðu og spurði hvort við hefðum ekki örugglega svarað játandi og við játtum því aglar saman! Og hann sagði, það er eins gott því þið verðið á fullu hérna í sumar! Ég held að það boði gott og er nokkuð ánægð með þetta;)

Skammhlaupið er á föstudaginn og ætla ég að vera í reipitogi.....það er kominn tími á að þessir busar sjái hvað mínir vöðvar hafa upp á að bjóða! mohahahaha ;)

Svo er víst einhver hugmynd um ball á föstudaginn en ég veit ekkert um það...einkennilegt að það sé að koma fimmtudagur og engin aulýsing komin upp um þetta ball! Ég bara get ekki lifað í svona óvissu mikið lengur! wwhaaaa

Svo er verið að gæla við þá hugmynd að fara í bíóferð á morgun (fimmtudag) veit ekki á hvaða mynd við ætlum en það kemur allt saman í ljós:D Við förum sennilega ekki fyrr en eftir æfingu, en það er í lagi;) Ég og Áslaug buðumst nú til að fara með Sigurð Ólafs, Valda og fleiri til RVK í verslunarferð:D En einhverra hluta vegna afþökkuðu þeir það (er ekki að skilja þessi viðbrögð þeirra)!

En það er allt að gerast í skólanum....ég er fyrir ofan falleinkunn í þýsku, ensku held ég líka, ég fékk 10 í íslenskurprófi (Egilssaga) Þannig að þetta er allt í gúddí held ég bara....já og Steingrímur Ben (náttúrufræði 123 kennari) bauð mér að fara út tíma í gær, meira að segja tvisvar, því ég var einfaldegla svo gáfuð, hann sagði líka að ég mætti bara fara og útskrifast úr áfanganum með 10....það væri nú ekki verra:D En það er sem ég er farin að þekkja Steingrím ansi vel þá var kaldhæðni í þessum orðum!:S ;)

np: Þú færð bros - Sálin hans jóns míns.

Verð að koma því að að tvíburafrænkur mínar í DK þær Ásrún Adda og Þóra Kristín eru yndislegustu börn í heim og algjörir gullmolar, og það sem kemur upp úr þessum börnum! hahaha Sakna ykkar allra rosa mikið :**

Svo er ég að fara á "Laddi 6-tugur" á þriðjudaginn næsta ásamt mínum ástkæru systkinum sem eru búsett á Íslandi, þeim Særúnu og Andrési;) hlakka rosa til:D

Já og Særún gaf mér föt um daginn, þennan líka rosa fína bol og þessar ofur svölu peysu sem hún keypti í verðandi uppáhaldsbúðinni minni Divided í Århus City í DK:D

Og já til hamingju með nýja vinnustaðinn Stefán....það er ekki amarlegt að vera kokkur (kokkanemi) á SAS hotel Århus:D

En ég held ég fari að láta þetta gott heita í bili!

Np: Lestin er að fara - Sálin hans jóns míns (haha Gunna Mæja) ;)

kv. Alla


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 22:31:19 / alla

Sigur...

Við erum að tala um sigur gott fólk!

Já og það engann smá sigur!

Við stelpurnar í ÍA vorum að taka á móti Haukum hér áðan í Akraneshöllinni og við bara sýndum þeim einfaldlega hvort liðið væri betra og hvort liðið ætlaði að vinna!

Þegar við gengum inn á völlinn trúðum við því að við gætum unnið þetta lið!

Sem raunin varð!

Við erum að tala um 5-2 sigur!

ég held að það hafi verið 3-1 í hálfleik!

Ég var að spila minn annan leik í nýju stöðunni minni sem er miðvörður (fyrir þá sem ekki vita þá er það í miðri vörninni)

Fór reyndar út af meidd í fyrri hálfleik, eftir að hafa fengið hné í sköflunginn rétt fyrir ofan legghlífina! Og var með verk niður allan sköflunginn!

Er allt saman að koma til en er rosalega bólgin, en þetta grær áður en ég gifti mig, ef það gerist einhverntíman:D

En samt heilt yfir var ég sátt með minn leik í vörninni....og leik allra stelpnanna:D

En annars bið ég bara að heilsa í bili!

kv. Alla miðvörður;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 22:28:27 / alla

HJÁLP!

Gott kvöld kæru lesendur!

Núna stend ég frammi fyrir erfiðri ákvarðanna töku og vil fá álit ykkar á henni og hvað ykkur finnst að ég ætti að gera!

Nú stend ég frammi fyrir þeirri spurningu hvort ég vilji vera með í meistaraflokk næsta sumar eða ekki!

Það að vera með í meistaraflokk hefur kosti og galla!

Kostirnir eru að ég fæ tækifæri til að spila góðan fótbolta, fæ meiri og betri leikskylning, kemst í betra form og þetta gerir mig að betri fótboltakonu í alla staði! Ég get verið í góðum og skemmtilegum hópi og kynnst fullt af nýju fólki!

Þetta hefur líka galla og þeir eru að ég get ekki unnið vaktavinnu (þar sem ég þarf að mæta á allar æfingar og í alla leiki), ég get ekki farið í sumarfrí með fjölskyldunni (nema kannski eina stutta helgi), ég get ekki farið til Danmerkur og heimsótt yndislegustu fjölskyldu í heimi og ég get ekki skemmt mér eins mikið með vinum mínum og ég vildi!

Mig persónulega langar rosalega til að vera með!

En er ég tilbúin að fórna öllu þessu?

Hvað á ég að gera?

Ég gjörsamlega veit ekkert hvað ég á að gera þessa stundina!

Ég hef tíma fram á næsta miðvikudag til að hugsa mig um!

Hvað finnst fólki um þetta?

Vill fólk sjá mig spila fótbolta með meistaraflokk?

Ef það verður meistaraflokkur þá verður enginn 2. flokkur sem segir að ef ég er ekki tilbúin að vera með meistaraflokk þá get ég ekkert spilað í sumar!

Plízz ég bið um comment!

Vil bara fá álit fólks á þessu!

Þetta er kannski eina tækifærið sem ég fæ á ævinni til að spila með meistaraflokk, og það er það sem mig hefur alltaf dreymt um!

kv. allA sem snýst í hringi þessa stundina!

p.s. Vil vekja athygli á skoðannakönnuninni hér til hliðar!


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 23:43:33 / alla

ATH ATH ATH

Jæja gott fólk

Ég var að enda við að setja inn myndir á myspace-ið!

Endilega tékkið á því

Svo er ég að setja inn mynbönd á youtube!

Það koma linkar á eftir!


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 18:03:37 / alla

Sorry

Jæja ég nenni nú ekki að blogga en ég kom bara til að byðjast afsökunar!

Ég ætlaði að setja myndir inn af nýju klippingunni minni og úr afmælinu hennar Önnu Heiðu en vegna fávitaskaps þá gleymdi ég snúrunni af myndavélinni út á Skaga svo ég get ekkert sett inn fyrr en ég kem þangað aftur....þannig að það kemur kannski ekkert fyrr en á morgun eða miðvikudaginn í fyrsta lagi!

Strákfífl

kv. Alla


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 23:14:49 / alla

Blogg

Blogg?

Hvað er blogg?

En allavega þá er Pocahontas komin til að blogga fyrir ykkur gott fólk! Hún var að kynnast manni sem heitir John, þau voru að eignast litla stelpu sem heitir Indíana John's! hahahaha...

...Svona á ævisaga mín eftir hljóma....allavega hluti hennar;) nei ég segi svona!

Þriðjudagurinn er víst senn á enda sem þýðir að það eru tveir eða þrír dagar liðnir af vikunni (fer eftir því hvernig á það er litið;), en sem sagt tveir skóladagar liðnir og ég er búin að fara í helv... 3 próf á þessum tveim dögum og allavega eitt eftir! Þau hafa gengið misvel en það sem ég er ánægðust með er að mér gekk bara alveg ágætlega í nát 123 prófinu sem er Eðlisfræði!

En nóg af þessum skóla! Æfingarnar eru á fullu og er ég bara nokkuð ánægð með hann Halla;) Hann er að gera góða hluti með liðið og hef ég séð miklar framfarir á þessum örfáu vikum sem hann hefur verið! Það eru líka komnir nýjir leikmenn til að styrkja hópinn og og til að hægt sé að byggja upp meistaraflokk:D

Ég var voða dugleg að læra í gær fyrir náttúrufræði prófið eeen þegar því var lokið þá skellti ég mér á smá flipp með Gunnu Mæju og Sirrý, og við Sirrý ákváðum hvað Anna Heiða fær í afmælisgjöf:D Þetta var mjög skemmtilegt enda uppgötvaðist Indíana John's, John, Pocahontas og Hasselhoffinn kom upp í mér.....svona massaður að hlaupa yfir öldurnar á ströndinni.....hahaha þið getið rétt ímyndað ykkur hvað það var fyndið:D

Á morgun er miðvikudagur, sem þýðir að daginn þar á eftir er fimmtudagur, sem þýðir að það er að koma miðannarfrí.....já nú tekur við 5 daga miðannarfrí sem stendur frá föstudegi til þriðjudags;)

En ég held ég fari að láta þessu lokið þar sem það bíður mín ísrúntur ásamt Sirrý og Gyðu allavega;)

bæjó:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 17:53:05 / alla

já gerðu það:D

Ég bið ykkur að svara þessu fyrir mig elsku blogg lesendur....tekur ekki nema tvær mínútur...í guðanna bænum gefið mér tvær mínútur af ykkar;) 

miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta
út?

Alla;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 21:58:37 / alla

Apakisi með alsheimer!

Já þessi færsla ber nafn með rentu! 

Í dag er víst laugardagur....sem þýðir eitt....Oddný, Stefán, Ásrún Adda og Þóra Kristín eru að fara aftur til DK á morgun! Helga Margrét reddaði vaktinni minni fyrir mig svo ég gat borðað með öllum, þ.e. Oddnýju, Stefáni, Ásrúnu Öddu, Þóru Kristínu, Mömmu, pabba, Þóru og Guðmundi Þór! Þessar tvær vikur sem þessi yndislega fjölskylda hefur verið á landinu þá hef ég fengið einn besta mat sem ég hef á ævinni smakkað! Stefán þetta nám á svo sannarlega vel við þig;)

Nú sitjum við Guðmundur í sófanum og bíðum eftir að það byrji eithvað skemmtilegt í sjónvarpinu! Reyndar er ekkert skemmtilegt í kvöld svo við ákváðum að það sem yrði fyrir valinu væru Hnefaleikar! En eins og er bíðum við eftir að fótboltinn á Sýn klárist áður en að boxið byrjar!

Þetta er víst vinnuhelgi hjá mér svo ég hef voða lítið verið heima! Var með Oddnýju og co. í BGN í gær, fórum til Gerðu frænku í myndatöku og svo heim þar sem við borðuðum saltkjöt og KARTÖFLUMÚS! (var það eina sem börnin borðuðu næstum)!;) Svo fór Stefán til RVK og mæðgurnar voru eftir heima á Hvanneyri! Við horfðum á sjónvarpið og afi Óli kom í heimsókn og svona! Svo var farið að sofa og hlustað á Pílu Pínu! (plízz segið mér hvort þið vitið hvað þetta er eða ekki):) Svo í dag þá fór ég að vinna kl. hálf 8 og vann til tólf, þá fór ég heim og við fórum í fjósið á Hvanneyri með börnin að sýna þeim "beljur", þær voru ekkert par hrifnar af þessum skeppnum en ljósmyndarinn mátti samt taka mynd af okkur þarna;) Svo var ég að vinna frá hálf 4 til 7 og þá var þessi dýrindis matur hér heima!

Á morgun er vinna og svo heim að læra og svo út á skaga að læra meira og fara í skólann á mánudaginn! En það styttist í miðannarfrí;) :D

ATH! ATH! ATH!

Ég óska eftir hjúkrunarrými fyrir apaketti með alsheimer! Ef einhver veit um laust pláss endilega hafið samband;)

Þannig er nefninlega mál með vexti að ég ætlaði að fá far hjá Önnu Heiðu heim í Borgarfjörðinn, þegar ég kem úr tíma sé ég að hún hefur hringt, svo ég hringi til baka og þá tjáir hún mér að hún hafi gleymt mér á Skaganum og sé farin heim! Ég hélt hún væri bara rétt lögð af stað og gæti snúið við en NEI! hún var komin undir Hafnarfjall! Er það nú fáviti!

Svo talaði ég við hana í dag og hún sagði mér að hún hefði gleymt þverflautunni sinni heima þegar hún átti að fara að spila á tónleikum á skaganum! (veit ekki hvort hún var að ljúga að mér, tek þessu með fyrirvara) ;)

En jæja ég ætla að láta þetta duga í bili!

Ég vil bara þakka þessari yndislegu fjölskyldu fyrir þessar tvær vikur sem við áttum saman ásamt öllum hinum! Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst aftur í DK! ;) :D

kv. Alla


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 21:44:55 / alla

Hólmurinn

Já fínt, já sæll, já fínt, já sæll.......

Jæja þá er komið sunnudagskvöld enn og aftur....þetta líður....og fjölskyldan frá DK búin að vera hér í viku og á bara eftir að vera hér í viku í viðbót;/

En þessi vika er búin að vera yndisleg....það er þessir dagar sem maður hefur getað verið með fjölskyldunni!

Helgin sem er að líða var unaðsleg....ég kom heim úr skólanum á föstudaginn og fór beint með bílinn í smur og svo fór ég upp á Heilsugæslu að skrifa eina ritgerð....kláraði hana og fór og náði í pabba í vinnuna.....skutlaði honum í kaupfélagði til mömmu og fór bara sjálf heim! Fór að læra og pakka niður....því við stórfjölskyldan vorum að fara í ferðalag...réttara sagt í Stykkishólm.....við vorum komin þangað um 8 leytið og þar beið okkar dýrindis kvöldverður með allri stórstórfjölskyldunni!

Svo var bara djammað fram á kvöld eða spjallað!

Svo á laugardaginn var ég vakin kl. 8 takk fyrir....það var hún Þóra Kristín frænka mín sem gerði það....hún sem sagt svaf í sama rúmi og ég og það kom því í minn hlut að vakna með henni....við fórum upp að horfa á sjónvarpið og þar sofnuðum við náttúrulega báðar.....svo vaknaði ég við að Oddný systir ætlaði að vera svo góð við okkur að breiða sæng yfir okkur!

Svo var bara farið í heita pottinn og morgunmatur borðaður og svo drifum við okkur í Heimahornið (fataverslun í eigu Sessu frænku) þar gat fjölskyldan að sjálfsögðu verlsað! Svo var farið niður á Silfurgötu og allir fóru saman í skoðunarleiðangur um skógræktina í Hólminum og eithvað sumarbústaðaland og nýja hverfið.....svo var endað á því að fara í kirkjugarðinn og sett blóm á leiðin hjá Böðvari, Palla afa og Sæmu ömmu. Svo var farið heim og hafis handa við að elda.....það kom í minn hlut að vera driver þess helgina og var ég að keyra foreldra mína og systur og mág um bæinn....kannski ekki svo mikið en ég þurfti að fara nokkrar ferðir upp í íbúðína okkar!

Það var spjallað fram á nótt á Silfurgötunni, mikið rætt um körfubolta og mikið gaman mikið fjör!

Svo fórum við heim að sofa og svona!

Í morgun fékk ég nú að sofa til hálf 10....það var lúxus verð ég að segja en samt ansi þreytt!

Það var farið í pottinn og horft á fótbolta og hluta af formúlunni.....svo fórum við niður á Silfugöu og fengum okkur að eta og skelltum okkur svo í gönguferð um Hólminn í þessu fallega veðri.....við löbbuðum niður á höfn og fylgdumst með þegar það var verið að ferja kindurnar úr eyjunum í kring og upp á land....hef aldrei séð þetta áður og verð að segja það þetta var virkilega athyglisvert!

Svo fórum við upp í Súgindisey (held hún heiti það;) og fórum upp að vitanum....skoðum varðskipið Fagureyjarferjuna (sem Bergur maður Sessu frænku á;)....svo fórum við á Narfeyrarstofu (að sjálfsögðu) og fengum okkur heitt kakó og köku!

Ég tók mér svo göngutúr ein heim af Narfeyrarstofu og upp á Silfurgötu og fór að horfa á Snæfell Vs. KR í úrslitum Powerade bikarsins....sem betur fer vann Snæfell....þetta KR lið er ekki alveg að gera sig hjá mér....bara er ekki að fíla þetta lið!

En jæja ég held ég láti þetta nægja í bili

kem með myndir seinna!

kv. Alla


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 21:46:34 / alla

Guð minn góður! Á alveg að ganga frá manni???:/

Ég hélt það ætti að drepa mig í dag! Ekki af ásettu ráði...ég hélt ég myndi deyja úr hamingju og gleði!

Þannig er mál með vexti að systir mín og fjölskylda hennar eru að koma heim á mánudaginn!

Mamma mín ákvað af því tilefni að undirbúa eithvað óvænt fyrir þau. Það ríkti mikil þögn yfir þessum óvænta hlut og gat hún ekki sagt okkur hinum í fjölskyldunni einu sinni frá þessu, því við gætum kjaftað!

Mamma bauð tengdaforeldrum systur minnar í heimsókn og mági hennar og var hún búin að elda 3 lambalæri og læti, svo sytjum við öll í rólegheitum og spjöllum um 6 leytið í dag, þegar allt í einu heyrast mikil læti! Við lítum öll upp og eru þá fjölskyldan frá Danmörku ekki bara mætt á svæðið....2 dögum fyrr en áætlað var! Þetta var sem sagt ekki óvænt fyrir þau heldur okkur sem vorum að bíða eftir þeim!

Þetta er það besta sem hefur hennt mig í LAAAANGAN tíma og ótrúlegt en satt þá táraðist ég bara....ég sem er svo hörð gella og tárast aldrei!

En vildi bara segja ykkur frá þessu.....er bara alveg ennþá í skýunum!

En ég bið bara að heilsa ykkur og bið ykkur vel að lifa!


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 15:45:08 / alla

Infomation!

Skólinn búinn í dag...thank god....en þá tekur heimalærdómurinn bara við!

Langaði bara að vekja athygli á því að í gær, miðvikudag, hófst taka á nýju SATC myndinni og er ég nú þegar búin að verða mér úti um eina mynd frá upptökunum! Enjoy!

BIG CITY REUNION photo

Minn heitt elskaði og Sarah Jessica!

Myndarlegur er hann (hún reyndar líka, en hvað um það;)

kv. Alla SATC unnandi


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10